Boltinn lýgur ekki

Körfuboltaþátturinn Boltinn Lýgur Ekki, sem hefur verið leiðandi í körfuboltaumfjöllun á Íslandi, er kominn á Suðurlandsbrautina, heimili körfuboltans á Íslandi.Fjallað er um móður allra íþrótta á hispurslausan hátt. Íslenski boltinn í aðalhlutverki en NBA verður á sínum stað ásamt heitum tökum og góðum gestum.Það eru Véfréttin sjálf, Sigurður Orri og Tommi Steindórs sem stýra þættinum sem er í þráðbeinni á X977 alla fimmtudaga frá 16-18.

Episodes

Nov 29, 2021

1hr 1 min

BLE bræður hittust after dark í Fiskabúrinu og fóru yfir allar deildir nema Subway deild karla, landsleikjauppgjör þar sem svipan var ekki spöruð og enduðu þetta svo á smá NBA spjalli.

Nov 25, 2021

1hr 59 min

BLE bræður fengu fyrst til sín guðföðurinn, Kjartan Atla Kjartansson, til að renna yfir NBA deildina og svo kom sá ungverski, Máté Dalmay, í Fiskabúrið til að fara yfir Subway deildina auk þess að keppa í Kvissi við Tomma.

Nov 22, 2021

1hr 1 min

BLEverjar skiluðu uppgjöri fyrir síðustu daga. Sturlaður Stewart í Detroit, skallamaðurinn spilar enn í 2. deildinni, Leikdagur hjá Tómasi á Ásvöllum og sigurvegarar og taparar í Subway deild karla.

Nov 18, 2021

2hr 2 min

BLE bræður fengu til sín góðan gest í dag. Sá slæmi, Steinar Aronsson kom í stúdíóið. Yfirferð yrfir nývalið landslið karla fyrir undankeppni HM 2023 , agamál í neðri deildunum og fleira. Aðalmálið á dagskrá var svo Subway deild karla.Farið yfir öll liðin. -Bestur hingað til? -Mestu vonbrigðin? -Hver á eitthvað inni? -Hvaða leikmanni ætti að bæta í liðið? Þetta, og margt fleira í BLE þætti dagsins.

Nov 15, 2021

47 min

BLEverjar voru í sínu nátturulega umhverfi (tveir í lokuðu rými) á mánudegi og fóru yfir hlutina á mettíma. Leikdagur, Deadline day, 2. deild, 1. deild, winners, loosers og margt margt fleira.

Nov 11, 2021

2hr 5 sec

BLE verjar fengu til sín tvo frábæra gesti í þessum þætti. Fyrir hönd Þorlákshafnar var Heiðar Snær mættur en fyrir hörðustu Tindastólsmenn landsins var Gunnar Birgisson á svæðinu. Fyrsti hálftíminn fór í NBA deildina en svo var Véfréttin mætt með kraftröðun fyrir Subway deild karla fyrir strákana að rífa í sig. Liðunum var raðað í styrkleikaröð eftir því hvernig þau eru að spila á þessari stundu.

Nov 7, 2021

1hr 14 min

BLE menn tóku hlaðvarpsútgáfuna á sunnudagskvöldi í miklum gír. Farið í neðri deildirnar fyrst áður en Subway deild karla er tekin fyrir. 360° greining á Tómasi í Körfuboltakvöldi. 

Nov 4, 2021

1hr 59 min

BLE bræður byrjuðu tveir og fóru yfir NBA deildina ásamt því að gefa NBA League pass í beinni. Sá slæmi mætti síðan til þeirra bræðra og þeir kíktu í kristalskúluna ásamt því að fara aðeins yfir fall og ris Máté Dalmay hjá Haukum.

Oct 28, 2021

1hr 59 min

Það var gestagangur hjá BLE mönnum eins og oftast áður. Kjartan Atli Kjartansson fór með þeim yfir NBA deildina fyrri klukkutímann. Umræða um Celtics, Lakers, nýjar reglur sem gera James Harden erfitt fyrir og fleira. Í síðari hlutanum kom Matthías Orri Sigurðarson og leiddi landann í allan sannleika um Subway deildina á mannamáli. Stemmning í Grindavík, tæknivillukvart og hvor er harðari, Kristófer Acox eða Svenni Claessen? 

Oct 24, 2021

1hr 2 min

BLE í hlaðvarpsformi þennan sunnudaginn fór yfir þjálfaraleit ÍR-inga. Verður þetta sama gamla eða þora ÍR að fara í eitthvað ferskt? Snertu á neðri deildunum, góður leikur hjá þeim Slæma en ekkert frá Strætónum. Tæknivilla á dómarann og smávegis NBA í lokin. 

© 2023 Boltinn lýgur ekki

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125