
Thursday Jan 06, 2022
Boltinn Lýgur Ekki - Hringt í Martin Hermannsson og notaðu bara PCR próf til að fresta leik.
BLE bræður mættir til leiks á nýju ári.
Fóru fyrst yfir NBA deildina þar sem Lance Stephenson er mættur til leiks á ný sem og Kyrie Irving. Tóku svo smá snúning á frestunaráráttu körfuknattleikssambandsins.
Hringdu svo til Valencia þar sem Martin Hermannsson sat fyrir svörum um lífið, boltann og tilveruna á Spáni.
Síðasti klukkutíminn fór í íslenska boltann. Farið yfir félagaskiptin sem áttu sér stað yfir hátíðarnar og spáð í spilin fyrir næstu umferð.